Fréttir frá Fífusölum

Undanfarnar vikur hafa heldur betur verið undarlegar. Fyrst var verkfall og leikskólinn lokaður svo tók Covid-19 við og börnum og starsfólki var skipt í tvo hópa. Þegar það var loksins afstaðið og við sáum fram á að geta sameinast hinum hópnum, þá skall aftur á verkfall. Leikskólinn lokaði því aftur í kjölfarið á því. Að þessu sinni ákvað Menntasvið að senda frá sér tilkynningu um starf leikskólans.

Upplýsingar frá Menntasviði
Á tímum sem þessum þar sem daglegt líf barna hefur farið úr skorðum vegna utanaðkomandi áhrifa er mikilvægt að reyna að búa til tíma og rými þar sem þau fá tækifæri til að hitta vini sína og kennara og njóta leiksins. Menntasvið Kópavogs leggur áherslu á að þeir leikskólar í Kópavogi sem hafa þurft að loka vegna verkfalls Eflingar bjóði börnum í leikskólanum upp á samveru í útiveru tvo tíma á dag eins og venjubundið er í leikskólastarfi, meðan á verkfalli stendur til að gefa þeim tækifæri til að njóta samvista í leik og starfi.

Boðið verður upp á útiveru í leikskólanum í tvo tíma á dag, kl. 9.00-11.00. Starfsmenn leikskólans verða til staðar og börnin hafa aðgang að salerni leikskólans. Leikskólastjórar taka að sér að ræsta þá aðstöðu en að öðru leyti er húsnæðið ekki opið þessa dagana
Þessi ráðstöfun er hugsuð til að hlúa að velferð barna og stuðla að öryggi og vellíðan þeirra.

Við erum þakklát leikskólastjórum og starfsmönnum leikskólanna fyrir að standa vaktina og finna lausnir til að börnin geti notið sín í leik og starfi.  

Svo eru hér nokkrar ábendingar frá okkur kennurum:

  1. Passið að hafa börnin klædd eftir veðri( frekar meira en minna, auðveldar að fækka fötum en vanta)
  2. Verið búin að bera sólarvörn á börnin
  3. Látið þau endilega á salernið áður en þið komið því það verður aðeins eitt salerni fyrir börn og annað fyrir starfsmenn
  4. Það verður ekki skipt á bleyjum þessa tvo tíma nema það sé kúkur

Sjáumst á mánudaginn :)