Vegna verkfalls Eflingar

Heil og sæl kæru foreldrar

Enn er ósamið í kjaradeilu Sambandsins og Eflingar, stéttarfélags ræstingarfólksins okkar og er næsti fundur boðaður á mánudaginn kl. 10.00. Því er staðan þannig að leikskólinn verður lokaður á morgun (föstudag) og á mánudaginn.
Við látum heyra í okkur seinni part mánudagsins til að halda ykkur upplýstum. Vonandi leysist þetta fljótt!